Persónuupplýsingar
Almennt
Líkami & Lífsstíll mun ekki láta upplýsingar á borð við tölvupóstföng, heimilisföng, símanúmer, tölvupóstssamskipti eða aðrar persónu upplýsingar til þriðja aðila án samþykkis viðskiptavinar nema samkvæmt lögum eða dómsúrskurði.
Netverslun
Þegar þú kaupir vörur í netversluninni okkar þarftu að gefa upp persónu upplýsingar eins og t.d. nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Veljir þú að greiða með kreditkorti flyst þú yfir á örugga greiðslugátt hjá Borgun þar sem þú þarft að slá inn kreditkortaupplýsingar. Þegar greiðsla með kreditkorti er lokið ferðu sjálfkrafa yfir í netverslunina okkar. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að inna greiðslu af hendi og senda vörurnar heim til þín.
Netföng
Þegar þú skráir þig í netverslunina og/eða í netklúbbinn okkar fer netfangið þitt á póstlista. Þú getur skráð þig af póstlistanum með því að smella á vefslóð í pósti sem sendur er á netfangið þitt.
Meðhöndlun upplýsinga
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Það sem þú deilir með okkur fer ekki lengra nema jú ef það, að okkar mati, varði við lög. Við ábyrgjumst að við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar til ótengdra aðila.
Eins og gefur að skilja þurfum við í sumum tilvikum að deila með öðrum fyrirtækjum upplýsingum sem þau þurfa til að geta veitt okkur, og á endanum þér, þjónustu. Við þurfum t.d. að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt og símanúmer svo vörurnar þínar komist til skila.
Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.
Með því að gefa upp annað heimilisfang en þitt eigið gengst þú við því að hafa til þess leyfi frá þeim sem veita á vörunni/sendingunni viðtöku.
Kaupandi hefur rétt til að fá að sjá þær upplýsingar sem Líkami & Lífsstíll hefur um hann. Hafi kaupandi eitthvað út á þær að setja hefur hann rétt til að fá þær leiðréttar eða afmáðar án kostnaðar.
Athugaðu: Upplýsingar fyrir greiðslu á vörum eins og kortaupplýsingar eru ætíð sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun. Slíkar upplýsingar eru ekki unnar á vefsvæði Líkama & Lífsstíls.
Síðast uppfært 6. janúar 2020
Sjá einnig um vefkökur.
Sjá einnig skilmála.