Merki fyrirtækisins lárétt án texta
Merki fyrirtækisins lárétt með texta

Afhverju velja SCI-MX

SCI-MX UPPFYLLIR AÐ FULLU REGLUGERÐIR

  • EFSA (European Food Safety Authority)
  • FSA (Food Standards Agency)

SCI-MX ER MEÐ FULLA AÐILD AÐ:

  • HFMA (UK Health Food Manufacturer’s Association)
  • ESSNA (European Specialist Sports Nutrition Alliance)

HRÁEFNABIRGJAR SCI-MX STANDAST ALLIR EFTIRFARANDI VOTTANIR:

  • GMP
  • ISO 9001 (BS EN ISO 9001:2000) & ISO 17025
  • BRC Global Food Standards
  • Belgian Department of Food And Supplement Safety Standards (FAVV)
  • International Food Standards (IFS)
  • Informed Sport

Öryggi þitt er okkur gríðarlega mikilvægt!

Hjá SCI-MX eru engar málamiðlanir gerðar þegar kemur að gæðum. Allar vörurnar eru framleiddar í Evrópu undir ströngustu reglugerðum sem finnast í heimunum. Með hinum einstöku háu stöðlum á hráefnavali, nákvæmri framleiðslutækni og gríðarlegum hreinleika er tryggt að þú getir keypt allar okkar vörur með algjörri fullvissu þegar kemur að gæðum, öryggi, nákvæmri innihaldslýsingu og virkni. Hver einasta framleiðslulota gengst undir ítarlega efnagreiningu, er 100% rekjanleg ásamt því að vera með ISO 9001 (BS EN ISO 9001 : 2000) & ISO 17025 vottanir.

Þetta er ástæðan fyrir því að líkaminn finnur raunverulegan mun og æfingarnar verða miklu áhrifaríkari þegar þú notar fæðubótarefnin frá SCI-MX.

Að byggja upp vöðvastæltan og íþróttamannslegan líkama er verulega þess virði.

Þegar þú æfir reglulega eykst sjálfstraustið hjá þér og þú verður mun einbeittari í því sem þú gerir dags daglega. Að auki ferðu jafnvel að sofa betur og mun auðveldara verður að stjórna líkamsþyngd og matarlyst. Einnig ferðu að byggja upp styrk og kraft sem verður til þess að þú ferð að ná meiri árangri í líkamsræktinni eða í þeirri íþrótt sem þú stundar. Við æfingar flæðir um líkamann hormón sem kallast endorphin sem er besta vellíðunarhormón sem finnst í náttúrunni. Síðan skemmir ekki hversu vel maður lítur út líkamlega.

Þú hefur gaman af heilsurækt og villt ná góðri líkamsbyggingu svo þú verðskuldar fæðubótarvörur sem sannarlega virka.

Oft reynist erfitt að finna fæðubótarframleiðanda sem hægt er að treysta og reynist það jafnvel eftitt fyrir þá sem eru hvað mest búnir að kynna sér markaðinn. Flestir fæðubótarframleiðendur pranga inn á byrjendur lélegum vörum sem eru allt of hátt verðlagðar og svo eru aðrir sem selja alveg óþekktar vörur og hver veit hvaðan þær eru? Svo ekki sé minnst á fyrirtækin sem eru heltekin af vaxtarækt og nota myndir af hrikalegum vöðvaskrímslum og allskonar gervi vísindum til að blása upp innantómar fullyrðingar á umbúðunum af óþekktu dufti. Í mörgum tilfellum eru innihaldslýsingar ekki brotnar niður í magn af hverju efni fyrir sig.

SCI-MX er öðruvísi. SCI-MX er betri kostur sem skynsamt fólk velur.

Það eru fleiri en ein ástæða hvers vegna SCI-MX er það vörumerki sem verður fyrir valinu hjá topp íþróttafólki og fólki sem stundar reglulega líkamsrækt og vill virkilega ná árangri. SCI-MX er stærsti og mest ört vaxandi fæðubótarframleiðandi í Evrópu sem er í einkaeigu. Framúrskarandi alþjóða íþróttafólk velur SCI-MX og æ fleiri einkaþjálfarar mæla með SCI-MX fæðubótarvörum frekar en öðrum tegundum og framleiðendum.

SCI-MX gerir nokkrar djarfar kröfur og allar eru þær studdar með alvöru vísindum.

Enginn annar fæðubótarframleiðandi getur komið með þessar fullyrðingar:

  • SCI-MX er í eigu og er rekið af stofnendum sem hafa gríðarlega ástríðu af þjálfun, íþróttum og heilbrigðum lífsstíl.
  • SCI-MX starfar með fleiri vísindalegum ráðgjöfum og gerir fleiri vísindalegar rannsóknir en aðrir íþróttafæðubótarframleiðendur.
  • 88% viðskiptavina SCI-MX gerðu sín fyrstu kaup á SCI-MX vörum vegna góðra umsagna.
  • Viðskiptavinir SCI-MX eru tryggir; þeir koma oftar aftur en viðskiptavinir hjá öðrum framleiðendum
  • SCI-MX setur ekki mikið fé í markaðsmál en leggur aftur á móti gríðalega mikið fé til rannsókna, nýsköpun og gæðaeftirlit.
  • Engar ýkjur, engar gervi rannsóknir. Það sem stendur á umbúðunum er allt eftir ströngustu reglugerðum Evrópusambandsins.
  • Formúlur SCI-MX innihalda rétta skammta af virkum efnum og það sem stendur á umbúðunu er það sem þú færð.
  • SCI-MX notar aðeins hágæða hráefni og náttúruleg bragðefni þannig að hver og ein vara bragðast og blandast mjög vel.
  • SCI-MX var fyrsti fæðubótarframleiðandi í UK sem lauk mjög ströngu skráningarferli fyrir sínar vörur hjá Evrópusambandinu og eru enn þann dag í dag ein af örfáum sem hafa lokið því.

SCI-MX setur ekki saman einhverja vöru úr einhverjum lágæða hráefnum og setur upp glamúr miða á baukinn og selur þér. Vörurnar frá SCI-MX eru framleiddar af vísindamönnum í mjög nánu samstarfi með virkilega menntuðum og reyndum þjálfurum því SCI-MX gerir sér grein fyrir því að viðskiptavinir eins og þú vilja vörur sem gera mikinn mun fyrir æfingarnar hjá þér, líkamann og árangurinn.