50 ástæður til að stunda líkamsrækt
© Líkami & Lífsstíll - 12/09/2013
Eflaust vita það allir hversu heilsusamlegt er að stunda einhverja líkamsrækt. Hvort sem það er að mæta reglulega í líkamsræktarsal, fara út að ganga, synda, hlaupa, hjóla eða annað. Málið er bara að örva líkamann á meira ögrandi hátt en bara puttana sem þú notar á tölvumúsina og sjónvarpsfjarstýringuna. Fá pumpuna til að slá hraðar við áreynslu og styrkjast í leiðinni, reyna á vöðva líkamans og minnka þannig vöðvarýrnun og svitna smá. Öll hreyfing sem fær líkamann til að reyna meira á sig en venjulega verður til þess að þú ferð að borða hollari fæðu, efnaskipti og ónæmiskefi líkamans verða betri og ekki skemmir fyrir að líkamsfitan minnkar og almenn heilsa verður mun betri.
Hér að neðan eru 50 góðar ástæður fyrir því að stunda reglulega líkamsrækt. Þetta er vissulega ekki tæmandi listi en gefur góða mynd af því hvers vegna þú ættir að byrja í dag, þ.e. ef þú ert ekki nú þegar í reglulegri líkamsrækt.
Ef þú ert að byrja þá mælum við sterklega með því að þú hafir samband við einkaþjálfara til að fara rétt af stað.
01. Léttir lundina | 28. Bætir líkamsstöðuna |
02. Bætir eiginleikana til að læra | 29. Kemur í veg fyrir kvef |
03. Byggir upp sjálfsálit | 30. Bætir matarlist |
04. Heldur heilanum ferskum | 31. Bætir magn kólesteróls |
05. Heldur líkamanum í góðu formi | 32. Minnkar hættu á vissum krabbameinum |
06. Eykur andlega heilsu | 33. Lækkar háan blóðþrýsting |
07. Styrkir ónæmiskerfið | 34. Minnkar líkur á sykursýki |
08. Dregur úr streitu | 35. Vinnur á móti vitglöp |
09. Gerir þig hamingjusamari | 36. Dregur úr bakverkjum |
10. Gerir þig unglegri | 37. Minnkar beinþynningu |
11. Betri húð og húðlitur | 38. Dregur úr þunglyndi |
12. Bætir svefnmynstur | 39. Kemur í veg fyrir vöðvarýrnun |
13. Minnkar líkur á hjartaáfalli | 40. Eykur orku og úthald |
14. Bætir virkni liðamóta | 41. Eykur frammistöðu í íþróttum |
15. Eykur vöðvastyrk | 42. Eykur sársaukaþol |
16. Léttir á kvíða | 43. Bætir jafnvægi og samhæfingu |
17. Skerpir minnið | 44. Bætir súrefnisflutning til fruma |
18. Betri stjórn á hverskonar fíkn | 45. Bætir einbeitingu |
19. Eykur afkastagetu | 46. Betri sjálfsstjórn |
20. Eykur skapandi hugsun | 47. Minnkar þreytu |
21. Bætir líkamsbyggingu | 48. Eykur kynlöngun & fullnægingu |
22. Veitir þér meira sjálfsöryggi | 49. Gerir lífið spennandi |
23. Bætir athygli í lífinu | 50. Stóreykur lífsgæði |
24. Betri matarvenjur | |
25. Eykur langlífi | |
26. Styrkir beinin | |
27. Styrkir hjartað |
– listi fengin á veraldarvefnum