Við fitumælingu er notast við fituklípur sem hægt er að fá í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Við mælum með þessari hér sem er einföld, þægileg og á góðu verði.
Brjóst: Húðin í hliðinni á hægra brjósti er klipin* saman miðjavegu á milli geirvörtu og efrihluta brjóstsins.
Kviður: Húðin er klipin* saman ca. 2½ cm hægra megin við nafla.
Læri: Klípið* húðina saman á miðju framanverðu lærinu.
Með því að smella hér má nálgast Excel skjal til að setja inn mælda fituprósentu í hverri viku
*ágætt er að hafa ca. 2½ cm milli vísifingurs og þumalfingurs þegar húðin er dregin saman. Mælið síðan með fituklípunni ca. 1 cm frá fingrum.
|