Merki fyrirtækisins lárétt án texta
Merki fyrirtækisins lárétt með texta

Um SCI-MX Nutrition

SCI-MX fæðubótarvörur hafa haft stór áhrif á íþrótta næringarmarkaðinn með fjölbreytta og háþróaða línu fæðubótarefna, hönnuð með það í huga að hámarka líkamlega bætingu.

Vöruúrval SCI-MX passar fullkomlega við þarfir viðskiptavina og hefur með tímanum meira og meira laðað að hinn almenna borgara.

SCI-MX notar framúrskarandi vísindarannsóknir til að hjálpa neytendum að ná hámarks hreysti og vöðvabætingum og á sama tíma njóta kosta heilsusamlegs lífsstíls.

Merki SCI-MX Nutrition

Vörur SCI-MX eru byggðar á nýjustu rannsóknarniðurstöðum frá úrvals háskólum og rannsóknarstofnunum víðsvegar um heiminn. Þær eru framleiddar undir kröfum um lyfjaframleiðslu eftir formúlum sem þróaðar eru af okkar hópi vísindamanna.
Þær mjög ströngu kröfur sem gerðar eru um lyfja- og matvælaframleiðslu, sem allar okkar vörur eru framleiddar undir, tryggir að engin óæskileg eða bönnuð efni séu í innihaldinu.

Merkið einbeitir sér að þremur hlutum:

  • Bæta árangur í íþróttum
  • Bæta líkamlegt útlit
  • Stuðla að bættri heilsu og vellíðan.

Neytendur SCI-MX koma úr mörgum ólíkum áttum og þarfir hvers og eins misjafnar. Úrvalið af fæðubótarefnum frá SCI-MX nær að uppfylla misjafnar þarfir fólks og hentar því t.d.:

  • Atvinnufólki sem og öðru fólki í íþróttum þar sem líkamlegt ástand þarf að vera í topp standi og álag mikið.
  • Hversdagslega fyrir fólki sem vill næringaríka og heilsusamlega tilbreytingu frá skyndibita í hádeginu.
  • Einstaklingum sem vilja byggja upp stærri vöðva, minnka líkamsfitu og hraða endurbata eftir æfingar.
  • Öllum einstaklingum á hvaða aldri sem vilja vera heilbrigðir og viðhalda vöðvabyggingu og orku líkamans.

SCI-MX hefur á mjög stuttum tíma byggt upp net tryggra viðskiptavina sem treysta okkar vörum til að hjálpa þeim á öruggan hátt að ná sínum markmiðum.